Aldís Dröfn
Heimsóknir
Í dag:  32  Alls: 86887
Könnun
Hvernig finnst ykkur nýja blogcentralið virka?
Ekki vel
1 atkvæði

Allt í lagi
0 atkvæði

Vel
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Senda SMS og MMS
EF þér leiðist
Leitarsíður
Fréttasíður
Dagsetning
23. febrúar 2012
24.06.2008 13:42:17 / Diza

Fyrsta ferðalagið okkar :)

Góðan daginn

Við vorum að koma úr okkar fyrsta ferðalagi með Kolbrúnu Maríu á Laugardaginn og gekk það rosalega vel að mestu :)
Ferðalagið byrjaði föstudaginn fyrir viku, við mæðgur fórumkeyrandi með Stefáni afa og Önnu Maríu stóru frænku norður. Við hittum Pálmar
i Staðarskála og fórum með honum í bíl, restina af leiðinni :)
Litla skvís vildi lítið sofa á leiðinni og var hún því pínu erfið daginn eftir en þá var útskriftin hjá Guðrúnu systur :)  Hún var rosalega falleg á útskriftinni sinni :*
Við vorum fram á Mánudag fyrir norðan og fengum gistingu i eina nótt hjá Guðrúnu og strákunum hennar tvemur. Við fórum svo með þeim í sund og gekk það bara ágætlega hún var þó ekki eins mikill buslari eins og stóri frændi sinn :P En svo á Mánudaginn héldum við suður á bóginn til Ásu ömmu og Birgirs afa hans Pálmars. Og vorum þar í nokkra daga, við heimsóktum einnig Hönnu og Gulla hitt ömmuog afa parið hans Pálmars og voru þau að sjá litlu skvís í fyrsta skiptið :)
Við kíktum lika aðeins til Reykjavikur og gistum eina nott hja Bigga, Hittum Steinu, sigga og guðnyju lika:)
Heimferðin gekk rosalega vel en við skelltum okkur örlitla stund í sund þannig hún svaf mest alla leiðina heim :)

En annars er allt gott að frétta af okkur litlu fjölskyldunni :)
Við mægður erum bara að koma okkur aftur í rútinu, og Pálmar er farinn að vinna aftur!
Guðrún og Stefán Andri komu svo vestur, Björn Fannar reyndar lika en hann fór svo aftur norður. Þau mægðin ætla vera her allavega fram á næstu helgi þar sem ættamótið er þá! Við Pálmar erum enn að gera upp við okkur hvort að við eigum að fara og tjalda eða hvort að við eigum bara að keyra á milli.. spörum nottla bensin ef við gistum, en svo er spurning hvort að við nennum að gista i tjaldi með litlu :)

En ég fékk gleðifréttir frá Mömmu áðan en hún hrigndi og sagði mér frá því að Heiðrún frænka væri búin að eiga og eignaðist hún lítinn strák! Hann var um 18 merkur og 50 og e-ð sm náði því ekki alveg hehe. En til hamingju Heiðrún, Fjölnir með litla strákinn!:D:D:D

En ég ætla að láta þetta nægja í dag! ætla laga aðeins til hérna því stelpurnar eru að fara koma til mín i kvöld og litlu sætu krílin þeirra,, búin að sakna þeirra mikið :)

Kveðja Aldís Dröfn :)



» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 13:03:43 / Diza

Góðan daginn

Góðan daginn :)

Það er komin Laugardagur, aðeins vika í útskriftina hjá stóru systur :) Við kallinn erum að velta fyrir okkur hvort að við eigum að fara suður og ná í subaruinn eða hvort að við fáum far með familiunni ... vona bara að það reddist fljótlega :)
En annars er allt gott að frétta af okkur. Ég er orðin 19 ára dama, aðeins 1 ár þanga til maður getur rölt inn í ríkið sjálfur og keypt sér sjalfur að drekka þar ef maðu vill :) En svo var litla systir að fermast á afmælisdaginn og við skírðum litlu :) Þessi dagur var alveg yndislegur og allt gekk svo vel, örlítið stress á tímabili og þreyta en þrátt fyrir það var dagurinn frábær :)
Er líka bara fegin að við séum búin að koma þessu frá..

Annars þá er lítið annað í fréttum við erum bara heima mæðgurnar, og komin örlítil rútina á stelpuna sem henntar mér mjög vel þar sem ég get þa tekið til eða notað tímann í eitthvað annað meðan hún tekur 3-4ra tíma lúrinn sinn eftir hádegi :) Pálmar er farinn að vinna aftur og er litla skotta alltaf glöð að sjá pabba sinn þegar hann kemur heim!
Annars þá er bara sumarið framundan og vonandi þarf ég ekki að vinna fyrr en í haust þar sem mig langar bara að njóta sumarsins með litlu skottunni minni :) og svo kallinum lika þegar hann fær helgarfrí og sumarfrí.. hann er þó oftast kallaður í vinnu á helgum líka þannig hann fær ekki mikið helgarfrí ..
Ég veit frá litlu meiru að segja, ég var að fá nýja/gamla síman hans Pálmars í gær þar sem hann var að fá nýjan síma frá ms.. endalaust dekrað við þá sem vinna þarna, en ég mótmæli engu þar sem ég fekk þennan nýja/gamla síma :P
En ég held ég lati þetta gott heita i bili... ætla að reyna að taka smá til hérna á þessu heimili,, var byrjuð en settist svo niður og auðvitað þa nennir maður ekki neinu þegar maður sest niður hehe....

En þanga til næst kæru hálsar...
Kveðja Aldís Dröfn :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 23:41:29 / Diza

Só far só gúd

Gleðilegt kvöld kæru landar :)

Hér með ætla ég að vera duglegri bloggari, þar sem kallinn minn er að fara vinna og ég ein heima með stelpuna að mestu :)
En annars fer brátt að koma að stóra deginum! Á sunnudaginn næstkomandi mun ég eiga afmæli (verð 19 ára :P ), dóttir mín verður skírð - en við erum þegar búin að nefna hana Kolbrúnu Maríu eins og fólk flest veit :) Einnig er litla systir mín að fara fermast! Þannig þetta er heljarinnar dagur framundan ;)

Annars er lítið í fréttum af okkur fjölskyldunni! Við höfum bara verið að njóta tímans saman með kallinn/pabbinn hefur verið í orlofi :)
Sá tími hefur hins vegar verið alltof fljótur að líða!
Við fengum gesti yfir helgina en frú Rebekka Rut og maður hennar Hallur fengu gistingu hjá okkur þar sem þau ætla að mæta í ferminguna og skírnina :) æðislegt að fá svona gesti til að lífga aðeins uppá heimilið.. þótt dóttir okkar sjái nú um það að mestu þessa dagana þar sem lífsgleðin skín af henni alltaf hreint!
Einnig erum við hjónakornin farin að taka upp á því að fara saman í tölvuleiki i ps3 þegar stelpan er sofnuð á kvöldin :P og oft vinnur frúin:)
En núna er ég bara að bíða eftir frettum af systur minni og strákunum hennar tveimur, hvenær þau renna inn í bæinn :)

En ég læt þetta gott heita í bili.. þanga til næst..
Hin konunglegi bloggari ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 11:46:03 / Diza

3ja ára :)

Jahá ég var að fatta að síðan mín er löngu orðin 3ja ára :) Eða hún varð réttara sagt 3ja ára í mars.... Ótrúlegt en satt að þá er maður búinn að vera partur af bloggheiminum í 3 heil ár :P

Mér til gamans vegna þessa merka áfanga ákvað ég að skoða gömul blogg, og váv hvað gelgjan var mikil hjá manni á tímabili! :o Einnig eru sum blogg sem minna mann á slæman tíma og líka önnur sem minna mann á góða tíma :)
En lífið heldur áfram :P Og það er best að horfa á framtíðina með björtum augum og von í hjarta um bjarta og skemmtilega tíma framundan :D

En úr einu í annað... eða ég veit ekki hvað ég á að segja annað þar sem það gerist mjög lítið í þessu litla lífi mínu núna! Ég er aðalega heima með litlu skvísunni minni og svo núna kallinum þar sem hann er kominn aftur í fæðingarorlof! :)
Annars þá er góða veðrið að koma aftur og akkurat þegar maður er að fara byrja í prófum ..puff! Kallin getur þá tekið sér göngutúr með litlu meðan ég reyni að einbeita mér af því að læra fyrir prófin :)

Litla skvísan min er orðin rosalega dugleg að spjalla við mann og getur og spjallar hún endalust þegar hún er vakandi :) Hún er hætt að vera svona óvær sem er bara þægilegt! Og komin með rútinu þessi elska þannig þetta létti aðeins foreldrahlutverkið þegar það er komin rútina á þessu litlu kríli :)

En ja ég veit lítið hvað eg get sagt meira í bili....
Þanga til næst.. hafið það gott :)

Kv Mömmulína




» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 00:40:29 / Diza

Góða kvöldið

Góða kvöldið :)

Ég fékk allt í einu þessa löngun til að blogga, en veit ekki hvað ég á að blogga um því miður!

Jú ég get sagt ykkur frá skemmtilegum lífsreynslum sem ég hef lent í undafarið. Get byrjað að segja ykkur frá því að ég fór í mælt frönskupróf, og gekk svona semi vel bara. Nema hvað ég var algjörlega óæfð þar sem hún hafði sent textana í word 2007 og ég er ekki með það (ég held bara að ég þurfi að fara fá mér þetta forrit svo ég lendi ekki alltaf í þessu veseni, svei mér þá!) En ég tók bara svo seint eftir þessu þannig ég náði ekki að biðja hana um að senda þetta í word 2003, anyway fór og tók prófið og gekk eins og ég sagði áður semi vel bara, hún var mjög góð og spurði mig bara einfaldar spurningar um mig og upp úr textanum. Ég skildi hana alveg bara kunni ekki alveg að koma svarinu frá mér, þannig ég hef örugglega fengið mínus fyrir það! :S En vona bara að mér hafi gengið ágætlega vel, svo er það bara að standa sig í prófunum :P

Önnur skemmtileg lífsreynsla er að ég fór með Kolbrúnu Maríu til læknis útaf eyrunum, bara svona öryggistékk, ekkert að. Nema ég ákvað að nota tækifærið og ath hvort að ég gæti fengið getnaðavörn. Og læknirinn sem ég var hjá fór bara að röfla eitthvað að ef ég færi a pilluna gæti það bitna á brjóstamjólkinni og blablabla.. og endaði bara með því að segja við mig " Sko besta ráðlegging sem ég hef fyrir þig er að stunda ekki kynlíf í 3 mánuði í viðbót og hætta svo með stelpuna á brjósti og fara á eitthverja góða getnaðarvörn, aðra en pilluna! En það er kannski ekki eins gaman og hitt" Ég varð doldið kjaftstopp, ætlaði þa bara að fara þakka fyrir mig og labba út en þa skrifaði hann upp á lyfseðil fyrir mig! Ég var svo eftir mig að ég átti doldið erfitt með að koma orðum rétt frá mér nokkra klukkutima eftir.

Svo var það að Kristrún frænka kom vestur og var hún með mer i þeirri ferð sem eg fer til læknis, svo erum við að labba aftur heim og ég er að segja henni frá þegar vinur minn bað kærustunnar að vera með sér að eilifu. Þá datt þetta út úr mér " Já hann fór sko á fjórar fætur og bað um hönd hennar, ótrúlega sætt" Jáhá ef þið fattið ekki villuna strax þá sagði ég að hann væri með FJÓRAR fætur!!!! Það er engin manneskja með fjórar fætur, eða ekki svo ég viti til, allavega ekki þessi vinur minn :) En svona er eg orðheppin :)

En annars þá eru ekki fleiri skemmtileg móment sem ég man eftir í augnablikinu :)
En það er mjög lítið að frétta annars, ég er bara að fara að byrja í vorprófunum, loksins er þessi skóli að fara að vera búinn :) Fyrsta prófið mitt er 8. maí og seinasta 16. maí en þá á tengdamamma afmæli :)
En litlan er að vakna til að fá að súpa þannig ég þarf að kveðja núna.. Var voða gaman að spjalla ;)

Sjáumst seint og síðar meir :P
Kveðja Mömmulína :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 23:45:09 / Diza

Góða kvöldið

Ákvað bara að færa mig aftur hingað inn á þar sem ég var hvorteðer bara ein að blogga inn á hinni síðunni :P

En annars þá er bara allt gott að frétta af mér. Litlan stækkar og stækkar, er farin að vera alveg rosalega dugleg að halda haus, spjalla og reyna að spyrna sér og svo er hún farin að fara á ferð þegar hún er sofandi alveg rosalegt þegar við höfum verið að leggja okkur saman á daginn hvað hún ósjálfrátt ýtir manni langt í rúminu, liggjum kannski i miðjunni og þegar við vöknum þá er ég bara komin út á enda! hahaha :)

Annars gengur allt annað lika bara rosalega vel, er að fara klara skolan (þessa önn) prófin byrja í mai. Ég á bara eftir að skila nokkrum verkefnum og svona og er bara að reyna að vera eins dugleg og ég get :P Svo hlakka mig bara til þegar það er búið þá get ég bara sinnt stelpunni án þess að þurfa að hafa áhyggjur að þurfa að læra, skila verkefnum eða fara i próf :P

Svo er sumarið á næsta leiti mig hlakkar heldur ekkert lítið til :) Steina fer að koma, kemur í maí og verður fram í júní sem er bara æði, þótt hún verði í Hattadal þá getur hún kíkt í bæinn sem hún ætlar sér að gera, eða er skyldug til þess að gera ;) Það styttist í afmælið mitt, en systir mín mun fermast þá og við munum skíra litluna okkar sama dag :D Svo munum við halda á bíladaga litla fjölskyldan og mun það líklegast verða okkar fyrsta ferðalag með stelpuna, einnig þá helgi eru Guðrún og Björn eru að fara útskrifast og erum við aðalega a fara ´útaf því :) en núna, erum við bara að bíða og sjá hvortað við fáum ekki íbuð, verðum örugglega með foreldrum mínum í íbúð :)
Einnig hlakka mer lika bara til að geta klæðst pilsum og kjólum í góða veðrinu og sleikja sólina og gera svo margt. Einnig förum við á tvö ættarmót í sumar, eitt í minni fjölskyldu sem verður síðustu helgina í júní og svo hjá Pálmarsfjölskyldu síðustu helgina í júlí :) Þannig það er viðburðarrikt sumar á næstunni:)

En ég farin að deyja úr tilhlökkun, ætla að gera mig sæta og fína fyrir afmælið/ferminguna/skírnina:P Ælta að byrja að taka mataræðið og hreyfinguna hja mer alveg i gegn, er reyndar rosalega dugleg að fara út að labba þegar það er gott veður labba oft inn í fjörð og til baka ekkert sma hressandi :) En svo verður mataræðið nottla að vera i samræmi við hreyfinguna svo maður nái restinni af meðgöngukilóunum af sér :P Ætla að reyna að komast i svörtu buxurnar sem ég keypti mer en hef aldrei notað vegna þess ég var orðin ólett vantar bara örlitið uppa :P Ætla í klippingu og litun og svo fer ég til Dagnyjar i plokkun og litun og neglur :P Ætla að vera svaka gella i byrjun sumars ;)

En ég ætla að láta þetta gott heita í bili, nog komið af bullinu í mér í dag. Vonandi verðið þið bara dugleg að kíkja hingað inn á þessa síðu þar sem ég mun örugglega bara blogga hér, reyni að vera dugleg að henda inn færslum þegar ég hef tíma ;)

Kær kveðja

Aldís Dröfn Stefánsdóttir :)




» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 21:13:32 / Diza

Búin að færa mig :)

Góða kvöldið :)

Ætlaði bara að láta vita að ég er búin að færa mig alveg yfir á sameiginlegu síðuna okkar Pálmars:) sem er blogcentral.is/-mist-

Þannig endilega kíkiði bara þangað ef þið nennið að lesa bullið í mér ;)

Kær kveðja Aldís Mömmulína :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 15:49:19 / Diza

Orðin Mamma!?! :D

Góðan daginn :)
Jæja loksins erum við mæðgur komnar heim:) Litla prinsessan okkar kom í heiminn þann 1.mars.2008 :) Hún var heldur betur lítil en vóg rétt um 13 merkur og var 49cm.. en laaang fallegust!
Við vorum þrjá daga upp á sjúkrahúsi, litlan náði sér í smá gulu en er búin að ná sér alveg eftir það :) Við hinu nýbökuðu foreldrar erum enn í skýjunum yfir þessu litla kraftaverki okkar:)
Vildi bara nota tækifærið og þakka fyrir allar kveðjurnar.. og minna á að það eru komnar loks myndir inn á barnalandsíðuna okkar:)
En ég ætla að fara að sinna litlunni, blogga eira seinna við betra tækifæri:D

Kær kveðja Aldís :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 23:44:48 / Diza

Omæ....

Góða kvöldið!

Ég sit hérna í sófanum bókstaflega að leka niður af þreytu, er búin að vera læra frönsku fyrir frönskuhlutaprófið.. ásamt öðru.. ætlaði upp í Túngötu í kvöld þar sem ég fór ekkert í gær.. en tíminn flaug bara frá mér:!::cry: Þannig ég mun bara kíkja þanga uppeftir þegar ég er búin í mæðraskoðun eða eftir skóla!
Við fengum bílstólinn frá Hönnu og Jakob í kvöld, þau komu við með hann og eyminginn ég gleymdi auðvitað að segja þeim að það væri byrjað að læsa niðri.. en meðan svona við erum ekki búin að merkja bjölluna okkar þá er það bjallan sem stendur á Halldór eitthvað ... það er okkar bjalla:D Eigum bara eftir að setja miða á hana merkta okkar nöfnum hehe...
En annars þá er lítið að frétta, fór í sálfræðiprof í morgun og gekk bara vel:) fékk verkefnin mín til baka í þeim áfanga og var meðaleinkunin 9 ;) "Proffi hér á ferð" eins og Pálmar sagði hehe..
Einnig eru þessir blessuðu fyrivarverkir alltaf að verða sterkari og sterkari! En það er víst ekkert við þeim að gera heldur en að slaka bara á, fara í heitt bað eða sturtu og reyna að hvíla sig.Ljósurnar hálfvorkenna mér bara og segja mig "óheppna" því ég fæ svo mikla fyrivarverki og sting í lífbeinið.. mætti halda að litlan lægi á því hreinlega.. stundum þarf ég að taka mér smá pásu þegar ég er að labba, eða á erfitt með að koma mér fyrir.. En ég reyni bara að gera besta úr því það sem það er ekki hægt annað! Ég reyni þó að sleppa við að taka verkjatöflur þar sem ajj ég eitthvernvegin vil ekki gera það meðan ég er ófrísk..:$ Ég verð þó að viðurkenna að ég öfunda eina sem var sett í gang í kvöld:$ Ég vona svo að litla kríli mitt fari nú bara að koma sér í heiminn! Alveg sama orðið að hún komi 29 feb ef svo fer..
Langar bara að fara fá hana til að knúsa og kyssa! Og kannski léttast um nokkur kíló hehe:D:$ Finnst mér þyngkast svo með hverjum deginum.. reyni þó að vera holl.. er byrjuð að drekka meira af vatni og reyna að hætta að borða sætindi og við reynum alltaf að hafa hollt í kvöldmatinn:)  Ég vil ekki hljóma sjálfselsk eða neitt þannig þá vona ég bara að hún fari að fara koma líka upp á það að ég geti tekið hlutapróf 2 í sál 333.. mig langar bara svo óskaplega að ná öllum fögunum sem ég er í og til þess að vera pottþétt viss um að ég nái þá er betra að mæta í hlutaprófin og skila öllu inn.. hlutaprófið er nefnilega 11 mars.. Þannig ég krossa bara fingur og vonast eftir því besta! Annars er ég enn að velta fyrir mér hvernig þetta verður í apríl þar sem eitthver hlutapróf eru þá og Pálmar verður þá byrjaður að vinna aftur.. (ætlar að vinna bara aprílmanuð).. spurning hvort að hann fái bara klukkustundarfrí meðan ég hoppa og tek prófið.. svo er nottla á hvaða tíma er prófið og hvernig gengur með litlu! Margt sem ég þarf að pæla í til að láta þetta allt saman ganga upp...En annars þá fékk að vita í gær hluta af sængurgjöfinni sem við fáum frá steinu og mig hlakkar svo til að ég er að deyja úr spenningi!!! :D:D:D
Vissuð þið að það eru bara 17 dagar í páskafrí, er engan veginn að trúa hvað tíminn líður svo óskaplega hratt:!: Það var alltaf sagt við mig að seinustu 5 vikurnar yrðu bara pain og myndu líða svo geðveikt hægt þar sem allir væru að spurja hvenær ég ætti að eiga og svona, Ég hef þó reyndar ekki upplifað það mikið, fólk spyr bara einu sinni og svo já búið .. skólinn hefur einnig hjálpað tímanum að líða held ég sem ég tel bara góðann kost:)
Annars er ég búin að vera brjóta heilann um hvern ég eigi að hafa sem skírnarvott og hvað mig langi að skíra litlu skottuna.. auðvitað verður það sameiginleg ákvörðun hja mer og Pálmari hvað hún mun heita... en þetta er bara svo stórt! Litlan mun bera þetta nafn líklegast alla sína ævi (ef hún breytir þvi ekki fyrir fermingu).. og svo bara ajj .. fylgir þessu svo mikil ábyrgð!

En já ég fór í klippingu og litun í gær hjá möggu elly.. eða hún setti bara skol í hárið á mér og svo nokkrar strípur til að skerpa litinn.. þar sem það er ekki mælt með að ólettar konur séu mikið að lita á sér hárið:) En ég var bara sátt við útkomuna, eins og magga sagði.. núna er ég tilbúin til að fara upp á fæðingardeild.. svona sæt og fin:) Engin ástæða fyrir því að lita illa út.. hehe fékk þetta líka á svo góðum prís þar sem hún er að læra hárgreiðslu munaði bara rosalega miklu fyrir mig!:)
En annars ég ætla að fara fara hvíla mig þar sem klukkan er orðin svona margt og mig vantar góðan svefn fyrir prófið á morgun.. :)

Þannig ég segi þetta bara gott í bili;)
-Aldis Dröfn Stefánsd.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 15:25:32 / Diza

Smá þreyta

Takk stelpur fyrir annað skemmtilegt kvöld:) Skemmti mér rosalega vel enda var fyndið að sjá hvað sumar voru orðnar fullar á tímabili.. sérstaklega heima hjá Möggu hahaha:D:haha::haha:

En já annars er lítið að frétta, nema það að ég fór í afmæli til Elsu í gær það var haldið í einarshúsi:) Það var mikið spjallað og komumst við að mörgu um hvor aðra einnig fengum við æðislega fréttir.. sem ég ætla ekki að setja hér inn þar sem ég veit ekki með vissu hvort ég megi það hehe:)
En við heldum svo heim til Möggu og vorum þar í smástund og skelltum okkur svo á edenborg þar sem var stappað! Þar hitti ég einn gamlan skólafélaga hann Magna:) Var reyndar rosalega skrítið en gaman að sjá hann aftur.. annars vorum við Elsa ekkert voðalega lengi þarna þar sem stemningin var ekkert voða spennó:) En við skutluðum Elsu bara heim og ég rúntaði eitthvað áfram með strákunum..:) Fannst ég ekkert þreytt en þegar heim var komið þá fattaði ég hversu þreytt ég var orðin.. enda lögðumst við eiginlega bara beint upp í rúm:) Og ég svaf sko út.. loksins náði ég að sofa allan tímann!:D
En annars þegar við vöknuðum í morgun var fyrsta verk okkar að taka til! já við erum doldið góð í því að drasla íbúðina okkar til, en samt ekki mikið, vorum rosalega fljót að taka til:)
En annars er planið bara fyrir daginn að slaka á og njóta þess... eigum kannski von á heimsókn en ég er ekki viss á því (meginastæða fyrir þvi að við tókum til hehe:) ) Og svo munum við halda í kvöldmat til mömmu í kvöld, hún ætlaði að elda eitthvað gómsætt:)
En ja bara fyrir þa svona sem ekki vissu þa er bara vika í settan dag:D:D langaði bara að deila þessu með ykkur:)

En ég segi þetta gott í bili:) Farið vel með ykkur;)
-Aldís Dröfn Stefansdottir


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 01:05:01 / Diza

Fyrirgefið

Vá ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að blogga um... Þannig það verður bara punktablogg! Bara um ýmsilegt..

  • Skólinn gengur vel.. (er að vinna mér inn í haginn:))
  • Mig langar óskaplega að gera eitthvað skemmtilegt
  • Það er bara hundleiðinlegt í sjónvarpinu
  • Það er rúm vika í settan fæðingardag
  • Fyrivaraverkir eru að gera útaf við mig:S
  • Mér finnst ég vera jafn þung og jörðin
  • Mig langar í fóta og baknudd...
  • Mér leiðist einni heima
  • Mig langar að eiga fullt af pening
  • Við erum næstum því tilbúin með allt fyrir komu litla krílis
  • Ég á lítinn prakka fyrir frænda.. sem borðar sófann minn
  • Er ég leiðinleg??
  • Ég hata þreytu...
  • Mig langar í bíl
  • Mig langar til útlanda
  • Augun mín eru útgrátin og bólgin eftir grátur útaf hormónkasti:S:$
  • Ég ætla að fara að sofa eftir smá..
Hef þetta ekki lengra í bili...Góða Nótt

-Aldís



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 23:56:19 / Diza

Breytingar

Góða kvöldið..

Jæja þetta er búið að vera frekar þreyttur dagur:( Ég reyndar fór ekki í skólann í morgun þar sem ég hafði verið með svo mikinn hausverk og svimaði þegar ég stóð, þannig ég tók bara verkjatöflu og lagðist aftur upp í rúm og náði að jafna mig aðeins. Sem var bara ágætt .. ég náði þó að læra eitthvað í verkefnum sem ég á að fara að skila af mér, er þegar byrjuð á ferlisritunarverkefninu í frösnku þó ég eigi ekki að skila því fyrr en 7. mars þá ætla ég mér að vera búin að því áður, því ég mun ábyggilega ekkert vinna í því þegar litlan er komin í heiminn einnig um að gera að nota tímann til að gera öll þessi verkefni svo ég losni við sem mest áður en litlan kemur:)

Það er eitt sem er búið að vera að bögga mig alveg svakalega seinustu dagana og það er vatn sem er fast inn í eyranu. Er búin að prufa allt til að reyna að ná því úr en ekkert gengur:( Ég fæ oft hellu, og svo stundum heyri ég bara ekki neitt með vinstra eyranu:S En ætla að prufa að panta tima hjá lækni a morgun og vita hvort að hann getur nú gert eitthvað fyrir mig.. er nottla svo mikill eyrasjúklingur fyrir, fékk oft eyrnabólgur og eitthvað þegar ég var yngri og er ekki að meika að fara í gegnum eitthvern þannig pakka aftur og ekki meðan ég er ólétt og ekki heldur með nýfætt barn!

En annars þá var helgin bara æðisleg, var búin að segja frá hluta hennar i blogginu fyrir neðan:) En á sunnudaginn þá fór ég sund með Guðrúnu, Birni, Önnu Mariu, frændsystkinum Björns og svo auðvitað litla prins honum Stefáni. Það var rosalega gaman að sjá hvað litli var orðin alveg rosalega duglegur í sundi:D Hann náði að standa vel og var rosa duglegur að fara i kaf, einnig var mjög auðvelt að skemmta honum og fékk að heyra hann í fyrsta skipti hlægja og ekkert smá krúttilegur hlátur hjá honum:) Vorum það heppin að þurfa ekki að elda neitt þessa helgi þar sem við fórum í mat upp í tungötu á laugardeginum og svo hjá tengdó á sunnudeginum:)

Mamma og pabbi komu svo heim á sunnudeginum frá Reykjavik, tossinn ég ætlaði í heimsókn til þeirra í gær en var bara svo uppgefin eitthvað og svaf bara eins og steinn í marga marga tíma!:S En við fórum til þeirra í kvöldmat í kvöld, var slátur og gotteri og mmmmm hvað þetta var gott:D:D fékk auka orku bara við að borða þetta;) En mamma gaf okkur nokkur sængurver og lak sem hún hafði keypt fyrir sunnan og ekkert smá sæt! Einnig voru amma gósy og Tryggvi afi þarna.. við komum svo við heima hja þeim þar sem amma keypti örlítið handa okkur eða litluna öllu heldur.. var svona rosalega sætur mariubjöllu náttgalli hvít og bleik peysa og svo bleikar sokkabuxur! Við erum komin með svo mikið af fötum og svona að ég veit valla hvort að kommóðan dugi fyrir þetta allt saman:o

En já talandi um breytingar! Við breyttum enn einu sinni heima hjá okkur, sem sagt stofunni. Pálmari fannst eins og við þyrftum að breyta henni.. ég sagði bara allt í lagi og hjálpaði honum við að breyta, var svo sem ágætt þar sem við þryfum öll horn og undir öllu sem við náum vanalega ekki til:) Svo núna er stofan okkar miklu opnari og aðeins meira pláss, og ákvað Pálamr að við myndum ekkert breyta aftur ... ég tel þó niður dagana þanga til að hann segir að við þurfum að breyta aftur.. þessi elska:D:*
En annars þá held ég að það sé bara kominn svefntími á mig er orðin doldið þreytt þótt ég hafi verið voðalega róleg og sofið nóg í dag.. en svona er þetta bara, betra að vera úthvíldur heldur en dauðþreyttur:)
Þannig ég kveð bara í bili... blogga næst þegar ég nenni...
-Aldís Dröfn ..:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 13:38:34 / Diza

Árshátíð, Dans, yndislegur kærasti,:D

Góðan og blessaðan daginn:D

Þetta verður ábyggilega doldið væmið blogg en það verður bara að hafa það.. maður má núna vera væmin svona einu sinni:)

En ég fór á árshátíðina með stelpunum í gær!:) Ég var dálítinn tíma að finna mér fancy dress til að fara í, en fann þó ásættanlega föt á endanum:) Ég rölti svo með Elsu yfir í Edenborg og þar hittum við hinar stelpurnar, settum við borð og það var bara spjallað og spjallað. Við fengum ótrúlega góðan mat og var skemmtanahaldarinn engu síðri.. skemmtiatriðin voru mjög fróðleg og skemmtileg:) Eftir matinn héldum við heim til mín, þar var Pálmar búinn að setja snakk og gos á borð og allt reddí fyrir okkur stelpurnar.. Takk æðislega ástin mín:* En við skiptum um föt og svo settumst við niður og það var spjallað ennþá meira, sumar fengu sér í glas en aðrar ekki.. aftur á móti lét Katrín alltaf tómu flöskurnar sínar þar sem ég sat þannig ég leit út fyrir að vera drekka ..haha:haha::haha: En svo þegar klukkan var að verða tólf héldum við á ball með Páli Óskari;) Þegar við komum var allt troðið og ég þurfti að hafa vel fyrir því að passa upp á bumbuna mína! En allt fór vel.. dansaði ekkert smá mikið.. kláraði fótana mína klukkan 1 en hélt þó áfram að dansa eins og vitleysingur.. eða allavega eins mikið og ég gat í mínu ástandi!:) En þetta var ekkert smá gaman og ég skemmti mér ótrúlega vel! Þótt að ég hafi verið orðin þreytt í fótum fljótt, og með mikla samdrætti í bumbunni.. lét það ekkert stoppa mig:D

En annars þá vildi ég bara þakka KÆRLEGA fyrir mig stelpur! Þetta var svo ótrúlega gaman og þetta kvöld mun standa mér ferskt í minni í langan tíma, ég þurfti svo á þessu að halda... Þið eruð æðislegar!:D:*:*

Annars þegar ég komst heim þá skreið ég upp í sófa.. ég var alveg búin.. eftir að hafa legið þar í smástund staulaðist ég inn í rúm, og sofnaði þar í allri múnderingunni sem ég var í.. meira segja skónum! Enda vaknaði ég frekar skríngilega í morgun, málíngin var alveg farin í klessu og ég öll aum og sár eftir að hafa sofið asnalega..hehe

En annars þá vorum við loksins að fá fötin frá Ásu og fengum við 4 kassa fullan af fötum og dóti fyrir litlu prinsessu:D Og kítlar mér í fingurnar að fara að rífa upp úr kössunum og skoða þetta allt saman:)
Og ég ætla akkurat að fara að gera það núna.. erum svo að fara í kaffi til tengdó á eftir.. og svo kvöldmatur lika held ég...
En svo ætla ég mér að fara upp í tungötu, ég fór ekki þangað í gær þar sem ég sofnaði!:S Varð frekar fúl úti sjálfan mig! En ég segi þetta gott í bili.. ætla fara að gramsa í kössum:D:D:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 15:09:44 / Diza

Lítill stríðnispúki

Góðan daginn... Loksins komin hinn langþráði föstudagur:)

Ég sit hérna södd og sátt í sófanum, nýbúin að fá mér gott að borða og ætla mér bara að taka restina af deginum rólega svo ég hafi orku fyrir kvöldið:)
En ég ákvað að skella mér með stelpunum á árshátíðina, bæði matinn og ballið! Ball með Páli Óskari,, auðvitað getur maður ekki sleppt því, (þótt maður sé orðin svona rosalega óléttur:P) Ég ætla að heimsækja litlu fjölskylduna upp í Túngötu seinni partinn.. kannski fá eldri systur mína til að snyrta mig aðeins í leiðinni, víst að ég kann það ekki ennþá! Einnig veit ég engan vegin í hverju ég ætla, en ég hlýt að geta púslað eitthverju saman, glætan að ég fari að kaupa mér eitthvað komin svona langt, algjör peningasóun!

En annars er lítið í fréttum nema litlan heldur áfram að stríða okkur, var með mikla verki í nótt og gat vart sofið, einnig hreyfði hún sig mjög mikið.. en svo þegar við fórum í tékk í dag þá bara var allt í hinu fína! Þannig ég er hætt að hafa áhyggjur að eitthvað sé að fara af stað fyrr en ég stend ekki í lappirnar lengur af sársauka!:^)

Helgin framundan verður ábyggilega bara með rólegra mótinu, fáum líklega barnadótið frá Ásu systir Pálmars, þar sem Biggi er á leiðinni vestur i dag:) Ég vona það allavega.. En annars þá ætla ég allavega að skella mér í sund með litlu fjölskyldunni + Önnu Maríu á sunnudaginn.. betra að hafa eitthvað að gera heldur en ekki neitt og liggja bara í leti. Einnig ætlum við að baka og aldrei að vita að við bjóðum eitthverjum í kaffi;)
En held að ég hafi spjallað nóg í bili.. ætla halda áfram að skoða umræðurnar á draumabörnum:)

p.s. steina.. alltaf þegar þú hættir við að koma er veðrið gott... hahaha..

Aldís Dröfn 

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 21:29:45 / Diza

Já sæll

Já Sæll!

Alltaf er verið að gera þetta flóknara og flóknara.. :cry:
Núna er búið að breyta öllu systeminu hjá blogcentralinu, er doldið flókið en samt virkar mjög vel. Núna getur maður sett inn myndir án þess að þurfa að vesenast við að minnka þær og svona:)

Annars er lítið í fréttum eins og vanalega fórum í mæðraskoðun í morgun og er blóðþrýstingurinn kominn á rétt ról sem er bara jákvætt:) Þannig allt gengur vel nuna, litlan er með góða hreyfingar, reyndar hrellir mig með því að þrýsta svo vel á lífbeinið þannig ég get stundum valla hreyft mig, en það stendur svo stutt yfir að það er allt í lagi:) Einnig koma og fara fyrivaraverkirnir, og er ég bara búin að venjast þeim..

En annars þá ætla ég að reyna að koma mér í það að kíkja á sagnirnar fyrir frönsku, víst það er sagnapróf á morgun. Ég er búin með tvö hlutapróf sem ég er bara nokkuð ánægð með, þannig ég á bara tvö eftir.. held að það sé bara eitt hlutapróf í íslensku og það er ekki fyrr en seinni hlutaprófin eru:)
En ég held ég segi þetta gott í bili.. Ætla að reyna að fikta eitthvað meira í þessari síðu..:)

Aldís Dröfn Stefáns


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 29
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti